þið gætuð núna haldið að ég væri að fara að tala um framtíðardrauma, en nei. ég ætla að skrifa niður það sem mig dreymir. held að það geti komið að góðum notkum seinna.
í nótt,4,maí, þá dreymdi mig.. bíddaðeins.. hmm..
jaaá. mig dreymdi að brjáluð afgreiðslukona í myndavélabúð væri að reyna við mig. eða meira sona hoppa á mig og vilja afklæða mig. ég varð mjög skelkuð og hljóp burt. en hún elti mig. það var scary.
ég man ekki meira.
sem sökkar.
af því þetta var skemmtilegur draumur.
ég er farin..
...
nýr draumur, sem mig dreymdi í nótt, 14.maí
það var sem sagt einhverjir vondir kallar á eftir pabba mínum og stóra bróður. þeir ætluðu að drepa þá. en þeir vissu það ekki, en það gerði ég. ég sá þá vera tekna inní bíl þar sem þeirra beið aflífun. ég var mjög hrædd og grét. einhver reyndi að hugga mig og sagði að sona yrði þetta bara að vera. vilja vondu kallanna var framfylgt og þeir drepnir. ég alveg yfirbuga af sorg breytist í konu með svart hár. og nú var ég stödd á grund, nema það að grund var mjög sótthreinsaður spítali. og þar voru sömu vondu kallar búnir að taka yfir spítalann og voru að hóta að drepa alla ef að við (góðu kallarnir) gæfum ekki einn af über góðu köllunum okkar yfir til þeirra. við (góðu kallarnir) vorum stödd í einum salnum og vondu kallarnir í öðrum sal og var bara þunnt þil sem skildu okkur af.og über góði kallinn segir við mig, konuna með svarta hárið, að hann ætli að gefa sig fram, en eftir 10 mínútur. já, hann ætlaði að fórna sér fyrir hópinn og vildi aðeins fá að kúra með mér í 10 mínútur í staðinn. við leggjumst þá í sjúkrarúm þarna og kúrum og kelum. svo stendur hann upp, eins og dáti á leið í stríð, og opnar þilið og labba yfir. aftur verð ég yfirbuga af sorg, en þá er aftur einhver vondur kall hjá mér að hugga mig, og segir að svona þurfi þetta bara að vera. svo er þetta alltíeinu orðið þannig að spítalinn er fullur af líkamspörtum og þykir þá mjög sjálfsagt að skipta um líkamsparta eins og líkamsvessum. þá er vondi kallinn orðin hjúkrunarkona, sem var óvenjulík einni hjúkkunni á grund. og hún var með penna sem gat drepið alla. og hún kallar yfir þilið að hún ætli að drepa alla ef við opnum ekki þilið. þá opnum við en þá stendur hún með pennan uppí loft og allir deyja, nema ég. ég fer þá að fela mig fyrir henni. þá hætti ég að sjást og ég sé allt eins og í kvikmynd. þá sé ég gamla konu,sem var dvergur, með tvö börn. þau eru að labba um í kringum alla líkamspartana og líkin og eru að máta nýja og nýja líkamsparta eins og á útsölu í kolaportinu. svo er snögglega klippt á crazy hjúkkuna með blýantinn þar sem hún labbar um snarbrjáluð. svo er klippt yfir á gamla konu, sem er tvíburasystir hinnar gömlu konunnar, líka dvergur, hún sér nef á gólfinu og tekur það upp og mátar það. það smellpassar, og um leið deyr crazyhjúkkan. svo hverfa börnin sem hin gamla konan var með og þær hittast og leiðast út ganginn. ~svo bara vaknaði ég við símann minn.
Ađalvalmynd
Teljari
- Heimsóknir í dag: ...
- Ţennan mánuđ: ...
- Frá upphafi: ...
Innskráningar kubbur
Gagnasafn
- 2009 janúar(1)
- 2008 ágúst(1)
- 2008 júlí(1)
- 2008 maí(2)
- 2008 apríl(1)
- 2008 mars(1)
- 2008 janúar(1)
- 2007 desember(1)
- 2007 nóvember(2)
- 2007 október(1)
- 2007 september(1)
- 2007 júlí(1)
- 2007 maí(1)
- 2007 mars(1)
- 2007 febrúar(1)
- 2007 janúar(1)
- 2006 desember(2)
- 2006 nóvember(2)
- 2006 október(2)
- 2006 september(2)
- 2006 ágúst(1)
- 2006 júlí(2)
- 2006 júní(2)
- 2006 maí(6)
- 2006 apríl(3)
Auglýsing
Mjölnir
Ţetta var venjulegt, ég sagđi hefđbundiđ!
