I´m the green fairyAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
já.ég var í kórferð. margt skemmtilegt gerðist þar. ég sá páku-leikara sem leit alveg eins út og einn gaurinn í siktinu. og svo fór ég í jarðbað, sem er sona eins og bláa lónið, nema það heitir jarðböð. mjög fyndið, það voru skilti allas staðar sem stóð á VARÚÐ:100°. sem var mjög fyndið af því þetta var bara volgt.
og svo var sweeny todd að syngja bassaröddina í Requiem. hann var þarna í síðum frakka með blóðugan rakarahníf.
djók.
-vá hvað ég vona að einhver skilji þetta.
arna var endemis góður ferðafélagi, takkó arna.
nú nálgast 17.júní og þá verð ég grænn álfur.
já, þið heyrðuð rétt. ég ætla að kaupa grænar sokkabuxur og body-paint og vera græn, og vaxa svo vængi, og baða mig í glimmeri. þannig ég verð auðþekkjanleg.
en ég er að fara á næturvakt þannig ég ætla að fara að klæða mig.
bleessó.
your girl is lovely hubble.Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir
í gær fór ég á A.L.F. í fjórða skipti. það var reyndar einhvur fleppsýning þar sem allir skiptu um hlutverk. mjög hresst. mikið hlegið.-vil þakka grímu fyrir góðan dag. takk babe
ég lenti í mikilli lífskrísu um daginn.
ég var á huga, að sjálfsögðu, og fer þaðan inná einhverja aðra síðu, eitthvað tölvunördadrasl á þýsku. síðan fór ég inná eitthvað þar og þá bara fraus allt. ég rístarta tölvunni og þá var alltíeinu einhver kall í frakk á skjánum. svo komu upp helling af vírusvörnum, eða svo hélt ég. ég varð mjög hrædd og reyndi að fara útúr þessu. hrópaði af öllum lífsins kröftum á valdimar og hann gerði eitthvað rosa kúl sem reddaði öllu, held ég.
en eftir á þegar við kíktum á hvort eitthvað væri ónýtt þá virtist það eina sem gerðist var að auka inn síðum á favoritsið okkar og raða öllu í stafrófsröð!!!
ég VARA YKKUR VIÐ. ef það kemur kall í frakka á skjáinn þá er hann hinn ógurlegi stafrófsröðplúsaðaddainnáfavorites-vírusinn.!!!!
vúúhúúú...
maður dagsins er: Addi fyrir að hafa staðið uppá sviði í gær á g-strengnum einum klæða með mjaltarvél um sig miðjan. þú ert hetja fyrir okkur öll!
birthdaybluesAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
afmælisdagar mínir verða alltaf meir og meir óvelkomnari í líf mitt.tilhlökkun til þessa dags er meir og meir hverfandi, alveg eins og jólatilhlökkun.
alveg frá 13.ára afmæli míns þá hefur þetta alltaf orðið verra og verra. fólk kom ekki sem ég bauð, vinkvenna ósætti byrjuðu, fá þær fréttir að ég fái ekki að fara í útlandaferð með kórnum mínum (mikið drama á 16.ára afmælinu) og komast að því að ég hafi fallið í tónfræði. síðan í dag, 17.maí 2006 er ég orðin 18 ára gömul og hvað er ég að gera.
sit í tölvunni og skrifa biturt blogg. er búin að klæða mig upp fyrir eitthvað sem er ekki að fara að gerast og er ofan á allt það að fara á kóræfingu á eftir. sem verður FRÁBÆR endir á unglingaævi minni, þar sem ég á að vera fullorðin núna.
gleymdi nú alveg toppnum. ég taldi flöskur áðan og horfði á harry potter 4.
líf mitt er frábært.
..
kjánahrollurAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
ahhh.. ég er með kjánahroll niður allt bakið.ég á eftir að gera svo mikið en ég nenni því ekki. mig langar bara að vera í tölvunni og hanga á netinu eða sims. ömurlegt, en það er bara svo gaman.er búin að vera að fara í gegnum myndirnar mínar. alltaf gaman að sjá hverjum maður á myndir af.
það er þessvegna sem ég er með kjánahroll.
búin að skoða sömu myndirnar aftur og aftur. og ég bara get ekki hætt að tísta eins og græna íludótið sem hann ólíver á.
ég ætti samt í alvuru að klæða mig.
þessi náttföt eru ógeðsleg.
en ef þið eruð eins og ég, eirðalaus á mánudegi, þá mæli ég með þessu.
http://www.crackmuffin.com/html/What-Is-Love.html
bless
bright eyesAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
oh is it a dream..ég fann kjól fyrir afmælið mitt í dag. sem er rokkar.
bara fimm dagar í að ég verði lögleg.
heljarernar teiti dagin fyrir það. því þá ætla mh-ingar að fagna prófalokum og koma saman (kannski bara heima hjá mér?) og verða ölvaðir. rölta svo um skemmtistaðinn Pravda og elska allt og alla. eða deyja, það er líka valmöguleiki.
þá á ég nú samt ekki við að deyja, bara bigbarabúmm ekkert líf, heldur meira svona áfengisdauða.
þetta var vandræðaleg útskýring.
æh
beinhimnubólgaAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
ég er með beinhimnubólgu. eða ég held það.það er slæmt. og ráðið við því er að hvíla mig. en þá get ég ekki skokkað. sem er slæmt. því skokk er nýja áhugamálið mitt.
oh.
ég fór í bíó með pabba mínum í gær. á mynd sem er með leikara sem ég svór þegar ég var tólf ára að ég myndi aldrei ótilneydd horfa á. já ég fór á mission impossible.
þetta er reyndar ekki hann, en svipað mikil hetja.nei, sorry. rambó var miklu meiri hetja.
við kristjana áttum mjög óörflippaðan dag í gær.
já.
hún var bara lokuð.
ohh.
*sigh*
takk OlgaAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
í dag gerði ég mikið. ég fór í skólann minn,ég fór í hvíta skó og í gráan jakka.svo drakk ég voða mikið kaffi og keypti mér doppóttan klút.
síðan fékk ég að vera hvíslari fyrir Adda.Takk.
núna er ég í rauðum skóm. jess
ég horfði á fólk í þykjustuslag. það var gaman.
svo meiddi ég mig líka í puttanum. það var vont.
ég á afmæli eftir 14 daga. þá verður gaman.
fólk dagsins í dag er: Mamma og Pabbi
-fyrir að eignast mig og að eiga 19.ára brúðkaupsafmæli í dag.
dobrógítarAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
tregafullt gærkvöldið mun mér seint úr minnum hverfa. langri ferð lokið.
ég er samt ekki búin að tengja það beint. en ætli það sé ekki bara til hins betra.
ég er bara orðlaus..
vil þakka Grímu fyrir frábært lokasýningar partý. Gríma, þú rokkar!
fannst mér ansi skemmtilegt. sérstaklega þó hinum sí-klassíska "ég hef aldrei" .
best fannst mér þó þegar Sigga Eir tók Halldór Laxnes fyrir mig, og hafði það einnig verið tilhlökkunar efni mitt allt kveldið.
þetta var bara í flesta staði vel heppnað kvöld.
ég er samt núna farin að halda að áhrif frá þessum endalokum hafa átt nokkur áhrif á mig strax. til að taka dæmi þá er ég búin að fara á tvö elliheimili í dag, í sitthvoru sveitafélaginu. ég sveikst undan nammibindindi og fékk mér af páskaeggi og lét ömurlegan svefngalsa taka af mér öll völd í smáralindinni. ég drakk hvítvín með matnum og kynnti öll lögin sem spiluð voru af mix-diski frá mér. ég grét yfir queer eye þætti og langaði að fara á marthastuart.com. já, ég er ekki frá því að eitthvað sé öðruvísi.
núna bíður mín lestur í frönsku og íslensku, sem ég er einstaklega vonlaus yfir. vonlaus þá í þeirri merkingu að hafa ei von,-thus vonlaus.
nú kveð ég sirkusinn í sárum ekkasogum, og ykkur líka, og minni á að 18 ára vetragöngu minni verður fagnað á lokaballi mh-inga í maí.
Jörðin færist alltaf fjær.Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir
lítið hefur drifið á daga mína í páskafríinu.Af öllu því sem ég ætlaði að gera í fríinu, ég var með lista, þá er ég búin að gera tvo hluti, taka til innihjá mér og gera frönskuhlustunarpróf. Það finnst mér slæmt þar sem það eru aðeins einn dagur eftir af fríinu.
þannig núna ætti ég að vera að lesa Njálu og the Great Gatsby, helst á sama tíma, og klára myndir í myndmennt. Er eftir á í öllum fögunum, bara mis-mikið. Þessi þrjú lokapróf mín verða über.
Núna ætti ég að loka mig inní herbergi og hleypa engum inn. Já, engum segi ég. Loka mig inni og lita á gólfinu. Liggja og lesa Njálu.
ég er ekkert að fara...
æh
Stjórnstöð kallarAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
.. þó ég haldi áfram minni leið, er slæmt að vera einn. En ég vil þá teygja lífið beint af stút. Og með rauðan skúf í peysu geng ég út..svona hljóma orð. ódauðleg orð veit ég ekki.
Nú hafa eflaust margir fundið fyrir nýjum ilmi. Ilm sem veldur mörgum tilfiningum, gefur von, og tilhlökkun. Nú myndu menn halda að ég væri orðin væmin og dösuð eftir of mikla tölvunotkun og kaffi á einu kveldi, en það er ekki tilfellið.
Nei, því eftir heilmikla íhugun hef ég ákveðið að yfirgefa blog.central og ganga á vit nýrra ævintýra. Ganga á vit þeirra sem meira mega sín.
Já, ég ætla að gerast blogg-snobb.
Veit ekki alveg hvernig það gengur fyrir sig, en það getur nú ekki verið erfitt.
Uppfull af von og hugrekki, eins og dáti á leið í stríð, ætla ég að deila með ykkur, lesendur fjórir, vonum mínum, ástum, kaffi, og framtíðarplönum.
nú kveð ég í fyrsta skipti.
anna sigga hin þreytta
