ótrúlegtAnna Sigríđur Skarphéđinsdóttir
Það kom svolítið ótrúlegt fyrir mig núna rétt áðan. Svo ótrúlegt að hjartað í mér tók kipp og gleymdi að slá nokkur slög. Svo ótrúlegt að þetta gæti breytt öllu. Þetta er svo ótrúlegt að ég veit varla hvar ég á að byrja.Þannig er mál með vexti að ég vinn á þjónustuborðinu í Kringlunni og áðan ekki fyrir all löngu kom til mín maður með bréf. Það eitt og sér er kannski ekki svo merkilegt en þessi maður var bara svo nauðalíkur David Bishop syni Harolds Bishop. Maður sem ég hélt að hefði farist í hræðilegu flugslysi ásamt konu sinni og dóttur.
Eins og hver maður sér þá gat ég ómögulega heyrt hvað hann sagði þegar hann spurði mig einhverrar spurningar, eflaust um bréfið sem hann afhendi mér, vegna þeirrar yfirþyrmandi gleði sem endurlífgun hans hafði á mig.
En þá rann líka upp fyrir mér annað.
Ef David Bishop er í raun á lífi hvað um alla hina. Serena og Lilly, Connor og Dee. Kannski eru þau ekkert dáin heldur öll hér á Íslandi!
Þetta var svo yfirþyrmandi að ég fékk hausverk og er enn að jafna mig.
Þetta er bara svo ótrúlegt.
Athugasemdir
1
olga skrifar:
þau búa öll saman í stóru húsi út á landi. og eiga ekkert að fara út. kannski var david að reyna að koma þeim skilaboðum til þín að þau væru öll fangar og þyrftu hjálp.
23. nóvember 2007 klukkan 01:59
2
anna sigga skrifar:
já. ég hefði átt að kíkja í pakkann. kannski eru þau öll að bíða eftir að ég geri eitthvað...
23. nóvember 2007 klukkan 20:10
3
anna sigga skrifar:
ótrúlegt en satt þá hef ég komið heim til hans. það er hreint út sagt ótrúlegt að segja frá því.
og hann er barasta framkvæmdastjóri kringlunnar. pældíðí!
og hann er barasta framkvæmdastjóri kringlunnar. pældíðí!
29. nóvember 2007 klukkan 17:45
