Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir
mér líður vel núna í dag. og ofan á það þá hef ég þá tilfiningu að þetta ár verði gott ár.kannski í ár sleppir maður gömlum löstum og fer að gera eitthvað að viti.
en ég held að ég vitni bara í Dís, því hún orðaði þetta svo vel.
"í sumar ætla ég að rækta sjálfa mig"
þetta var væmin færsla en kannski verð ég væmin í ár en ekki bitur.
kannski
smá spurningAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
ég var bara að velta fyrir mér, hver er borgarstjóri Reykjavíkurborgar í dag?get bara ómögulega munað það.
held að það sé kona. en kannski var það í gær?
væri ekki hægt að senda borgarbúum bara sms um leið og það er nýr borgarstjóri
kominn, svona eins og á dominos.
en kannski fáið þið öll sms, ég bý náttúrulega í kópavogi, við fáum bara fréttabréf sent mánaðarlega.
Ágætu Kringlugestir takið eftirAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
ég er búin að íhuga núna alllengi hvort ég ætti að gera þetta eða ekki. kem mér bara ekki. ég held bara að ég geri það. en ef það verður asnalegt og pínlegt. hvað þá. á ég þá bara að láta það gerast. eða get ég stoppað það?
ég get stoppað það!! ég get það. hvað eruð þið að reyna að stoppa mig. reynið bara. ég get gert þetta ef ég vil.
lífið er gottAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
æi.. lífið er svo gott. ég er búin að útskrifast og orðin tvítug og allt er svo skemmtilegt. ég er búin að skipta um tónlistarskóla og er nú komin í söngskólann og er að fara til Ítalíu á sunnudaginn. lífið er gott. þó gengur bókin ekki hratt. í raun er bara komin ein blaðsíða. ég mun standa við þetta. ekkert beil. ég get eigilega ekki beilað af því að ég er búin að tala svo mikið um hana. þetta er svo góð setning ef maður er í hópi með fólki sem maður þekkir ekkert og helst ef fólkið veit aldrei alveg hvort að þú sért að grínast eða ekki. byrja bara. "já, vissirðu að ég er að skrifa bók?". ég skora á ykkur að gera eitthvað svipað. -tillögur að ísbrjótum í misleiðilegum samkomum eru vel þegnar, svona til að eiga fleiri en eina.SnusmumrikenAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
Du er Snusmumriken! Du er modig og rolig. Du er også selvstendig og kan ta vare på deg selv, men du er likevel venn med alle.
17.45% har falt innenfor denne kategorien.

Hvem er du i Mummidalen?
Av cocoeple - Tatt 316877 ganger.Laget: 13. april 06 kl. 22:11
Snitt poeng: 3.5
Start quizen!
óður til kaffis.Anna Sigríður Skarphéðinsdóttir
mér líður sjaldan betur en þegar ég er búin að fá mér tvo til þrjá kaffibolla á heldur tóman maga. þá fer um mann ákveðin tilfinning um kroppinn og ég verð mjög athugul. þá verður hausinn á mér mjög léttur og ég tala mjög skýrt. einnig hugsa ég mjög skýrt. í þessari kaffivímu þá brosi ég mikið og allt er auðvelt. en samt er eins og það hægist allt og þess vegna tala ég skýrt og brosi. svo að ég skilji hvað sé að gerast í kringum mig.
því ef ég geri það ekki þá verð ég ringluð og fæ hausverk.
þetta ástand er örugglega ekkert langt frá því að vera eins og eiturlyfjavíma, myndi ég halda þrátt fyrir að undirrituð hafi enga konkret reynslu til að bera saman en ég get vel trúað því.
þetta er fyndið ástand af því mig langar til að leggjast niður og hlusta á tónlist og ræða heimsmál undir kertaljósi en ekki að gera mikið uppfull af þróti sem fylgir oft koffíni.
samband mitt við kaffi er margslungið. ég get eytt heilum degi í að tala um það og ég veit fátt fallegra en hátt glas með latte þar sem búið að mynda laufblað eða hjarta í froðuna. einnig finnst mér afar fallegt þegar mjólk er hellt út í kaffi og það blandast saman. já samband mitt við kaffi er það langlífasta sem ég hef átt en þá tel ég reyndar ekki með samband mitt við Neighbours en það fer ennþá lengra aftur. Kaffi og ég er ætlað að vera saman og ekkert kemst á milli okkar.





lífið er svo undarlegt og skrítiðAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
Bókaskrifin ganga hægt þessa dagana. ég er farin að efast að bókin nái að koma út fyrir jól. en hver veit. málið er nefnilega að ég á ekki fartölvu. eða jú fjölskyldan mín á fartölvu en hún er svona svipað stór og þung eins og hin venjulega borðtölva er í dag. svo dæsir hún mikið og neitar að fara á netið. En ástæðan fyrir því að mig vantar eigin fartölvu er sú að Kaffi,ekki karlmenn verður ekki skrifuð hvar sem er. þar sem að rómantísku kvöldstundirnar sem ég eyddi með sjálfri mér við kertaljós og ljúfan hljóm úr plötuspilara í litla kjallaraherberginu mínu í Kópavoginu eru nú af afar skornum skammti þá hef ég komist að þeirri niðurstöðu að næstbesti kosturinn í þessari stöðu sé að sitja inni á hæfilega óvenjulegu kaffihúsi í miðbæ Reykjavíkur með kaffibolla og fartölvu mér við hönd. Fylgjast svo með mannflórunni hlaupa um strætin í þessu leiðinlega eftirmiðdegi og skrifa svo bitrar en þó léttar og fyndnar færslur um karlmennina í lífi mínu.
en útaf skorti á fartölvum og rómantískum kvöldstundum í Kópavoginum þá hef ég því ákveðið að fresta bókaskrifum um óákveðin tíma.
það er nefnilega svo margt sem þarfnast óskertrar athygli minnar. eins og komandi tvítugs afmæli, útskrift og hvernig ég muni fjármagna sumarferðirnar mínar.. en þó virðist athygli mín eyðast í eitthvað allt annað en hræðandi skipulag framtíðar minnar. eins og núna er ég í óðaönn að reyna að komast að því hvort ég nenni að skipta um sokkabuxur af því að þessar sem ég er í eru með lykkjufall. og þar á milli hugsa ég mikið um hvort ég hafi nokkurn tíman lesið bókina un meutre dans un jardin francais og líka það hvort að meutre hafi verið skrifað með greini eða ekki.
já. þar hafiði það. smávæginlegar hugsanir hversdagsins eru að taka yfir líf mitt.
en kannski er það gott. þá hef ég ekki óþarfa áhyggjur af öllu því sem komandi er. sem ég er að byrja að fá núna við það að skrifa um það.
NostalgíaAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
mér fannst eftirfarandi færsla mjög skondin og ákvað deila henni með heiminum. aftur.
"þá var sko já svarið. en já er ekki svarið. nei. kaffi er svarið. og herðaslár. og góður djass. ekki karlmenn. ónei. "
ónei.
Athugasemdir
bestseller á leiðinni eða hvað.
-ég hef einnig ákveðið að byrja á þessari bók. þið megið búast við að sjá hana í hillum allra helstu bókabúða Íslands rétt áður en aðal-jólabókaflóðið byrjar núna jólin 2008.
hugmyndAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
hvernig væri að þetta blogg yrði bara um nágranna?ég myndi bara blogga um það hvernig nágrannar tengjast öllu sem ég geri í daglegu lífi.
ég held að það sé góð hugmynd.
ótrúlegtAnna Sigríður Skarphéðinsdóttir
Það kom svolítið ótrúlegt fyrir mig núna rétt áðan. Svo ótrúlegt að hjartað í mér tók kipp og gleymdi að slá nokkur slög. Svo ótrúlegt að þetta gæti breytt öllu. Þetta er svo ótrúlegt að ég veit varla hvar ég á að byrja.Þannig er mál með vexti að ég vinn á þjónustuborðinu í Kringlunni og áðan ekki fyrir all löngu kom til mín maður með bréf. Það eitt og sér er kannski ekki svo merkilegt en þessi maður var bara svo nauðalíkur David Bishop syni Harolds Bishop. Maður sem ég hélt að hefði farist í hræðilegu flugslysi ásamt konu sinni og dóttur.
Eins og hver maður sér þá gat ég ómögulega heyrt hvað hann sagði þegar hann spurði mig einhverrar spurningar, eflaust um bréfið sem hann afhendi mér, vegna þeirrar yfirþyrmandi gleði sem endurlífgun hans hafði á mig.
En þá rann líka upp fyrir mér annað.
Ef David Bishop er í raun á lífi hvað um alla hina. Serena og Lilly, Connor og Dee. Kannski eru þau ekkert dáin heldur öll hér á Íslandi!
Þetta var svo yfirþyrmandi að ég fékk hausverk og er enn að jafna mig.
Þetta er bara svo ótrúlegt.
